þriðjudagur, september 28, 2004

ölfræði

vá hvað það væri gaman ef það væri kennd ölfræði í staðinn fyrir tölfræði í skólanum. allir sætu ligeglad med bjórinn sinn og rædd um sögu bjórsins og svo væri farið í námsferðir niðrí bæ um helgar, að sjálfsögðu með styrk frá skólanum. sjibbí.

|

mánudagur, september 27, 2004

di immortales!

ég skulda bókasafninu á nørrebro 520 dkk.

|

föstudagur, september 24, 2004

einu sinn var eggblindur, eðjótískur marsbúi. hann hét jón. jón var alger drallspeni og dansaði í massavís við dreifbýlistónlist. eitt sinn er hann var tjúnaður skellti hann sér í tánið með lúkupussu sem hann þekkti. þegar þangað var komið fóru þau inn á pöbb og hittu fyrir tekkhaus og stofukomma. tekkhausinn var í óðaönn að skrifa bók inn á pöbbnum því deddlænin var búin en þau töluðu þess í stað við stofukommann, sem í fyrstu reyndist léttur tappi. þau fóru að tala um fótabað en stofukomminn sagði að það splittaði ekki diff hvort frímerkjasafnið væri samansett úr eðalpíkum eða hexum því fuglinn væri alltaf til. að þessum orðum sögðum var marsbúinn alveg spól og löðrungaði hann sem hettumávur væri. marsbúinn vildi sko aldrei ferma neinar flyðrur. en stofukomminn var sko alls ekki sáttur, með blátt handafar á kjammanum...

|

sunnudagur, september 19, 2004

lag dagsins er með sparks.

lag dagsins heitir: this town ain't big enough for both of us.


|

laugardagur, september 18, 2004

Úff.......

Erfiður dagur í gær! Ég vaknaði í hóstakasti klukkan sjö og fór fram og drakk lítra af hóstasafti. Ætlaði aðeis að leggja mig og vaknaði alltof seint. Hljóp í sturtu, fann svuntuna mína leit á klukkuna og sá að ég var að missa af strætó. Ég skellti mér í skón. Sjitt!! Ég gleymdi að fara í sokka. Því miður á ég bara hnésokka svo ég var í fimm mínútur að klæða mig í þá, hljóp eins og fætur toguðu og rétt náði strætó, sem var ekker til að fagna þar sem bílstjórinn gerði grín að því að ég kynni ekki á tímatöbbluna (fíbl). Ég skreið í vinnuna og þá byrjaði ballið. Það var fullt að gera, ARG! Svoleiðis eiga fimmtudagar sko ekki að vera! Ég bauð einni konu rauðvín út í kaffið sitt og annari beikon, eins gott að eigandinn var í góðu skapi og fannst þetta fyndið, annað en gömlu konunni sem að afþakkaði beikonkaffiðópent. Svo þegar dagur var að kvöldi kominn, og ég hélt að ég mundi ekki gera fleiri mistök, þá gerðis Það. Ég missti latte yfir einhverja stelpu og glasið brotnaði í þúundbilljón mola, og stelpan var rennandirennandirennandiblaut. Ég kom þó heim með köku, en uppgötvaði þegar ég skar mér væna sneið að ég var búin að lofa Særúnu að ég mundi ekki borða neitt óhollt, svo ég fékk mér poppkex.

Fopokkjúpúbb.

(ég veit, gamalt blogg, en svo lýsir samt sem áður deginum mínum svo vel.)


|

áðan

á ég mjóan strák að hjóla og feitan strák að borða ís hjabba* saman.

* so. hjabba er að hjóla og labba, einungis notað í fleirtölu þá er alla vega einn sem labbar og einn sem hjólar.

|

fimmtudagur, september 16, 2004

ólafur pá var sko ekki hommi. hann var glysgjarn konungssonur, hvers manns hugljúfi.

|

Que?

|

mánudagur, september 13, 2004

One night while reading a gruesome tale,
He read a passage that made him turn pale.

Such horrible news he could not survive,
For his beautiful wife had been buried alive.

He dug out her grave to make sure she was dead,
Unaware that her grave was his mother's flower bed.


|

sunnudagur, september 12, 2004

skemmtilegt orð:

bofs


|

laugardagur, september 11, 2004

úmma la la la
ég heiti inga fúsífa
fúsí fa fa fa
úma la la la
úma ebbi ebbi ebbi
úma stebbi stebbi stebbi
úma lás lás lás
mikki más más más
ég er hás
klípí tás
ú a tja tja tja

|

föstudagur, september 10, 2004

morgunlestur fréttablaðsins.

jón ársæll segir veislur ekki gerast flottari en kóngaveislurnar í perlunni hjá ólafi og dorrit, þau séu svo einstakir gestgjafar. gerðu þau nú eitthvað meira en að mæta á svæðið? allir geta mætt í perluna í ljótum kjól eins og dorrit.

jay kay missti bílprófið í 6 mánuðu af því hann keyrir eins og hálfviti. hann er þó mjög mikill áhugamaður um bíla og verður þetta því honum afar þungbær refsing. bíddu, á ég að vorkenna?

kirsten dunst er hætt að tala við móður sína í bili þar sem hún er ósátt við hvernig mamma hennar þvingaði hana út í skemmtanabransann. kirsten vantar athygli og þetta er klassísk leið til að fá smá. fáviti.

sigrún bender velur nings þegar hún vill hollan og góðan skyndibita. sénsinn bensinn.

ert þú hress? við leitum að starfsfólki....bla bla bla. já, ég er ofurhress. svo hress að ég gæti gubbað.

didrix spa býður upp á megrun og mótun...kjaftæði? ójá, ójá.

minni mör - meira fjör. herbalife. búmmbúmmtiss.

ticket to haven útigallarnir komnir. róbert bangsi og unglinarnir. hmm.....

bellini jakkaföt á hálfvirði. líta ekki vel út nema þú sért eins og þessi gaur.

sala á mcdonalds hefur aukist í chicago undanfarna mánuði þrátt fyrir umræður gegn neislu mcdonalds matar. = chicagobúar eru heimskir.

namus est lifstilum. fokking kb banki. hvað á þettað þýða?

veður í dag = vont. veður á morgun = vont. veður næstu árin = vont. hrmpf...


|

fimmtudagur, september 09, 2004

ég var að enda við að koma úr klippingu. ég flippaði og lét klippa á mig drengjakoll. nú er það bara busaball!

|

föstudagur, september 03, 2004

Myndi þig langa að það haldið lokaball ?

stendur stórum, skýrum stöfum á forsíður vefs nemendafélags flensborgarskólans.

og hvað sannar þetta?

í flensborg er heimskir krakkar = leiðinlegir krakkar = ljótir krakkar = þess virði að henda útí sjó.

|