mánudagur, maí 24, 2004

once upon a tilme there were two tomatoes walking down a street. then a car drove over one tomatoe and what did the other tomatoe do then?

|

föstudagur, maí 21, 2004

væææææææææææææææææææææææææl

þar sem foreldrar mínir eru miklir verkefnasetjarar, þá fékk ég verkefni í dag: að pakka niður. en ég bara get ekki byrjað því þá þarf ég að huga að því hvaða skór fara með og það er of erfið ákvörðun. ég get ekki gert á milli þeirra, mig langar að taka þá alla með.

|

það er gaman að bíta í tunguna


nýkomin úr deifimeðferð tannlæknisins. en það var mjög gaman hjá tannlækninum þar sem þetta er afar skemmtilegur kall. hann ætlar að gera tennur ástþórs magnússonar skínandi í dag, eitthvað segir mer þó að hann þurfi eitthvað meira til að verða forseti.

|

fimmtudagur, maí 20, 2004

bara 5 dagar

vá hvað það er gaman að telja niður. eftir 6 daga ligg ég á verödinni minni og fer svo að dansa í herberginu með diskóljósunum. svo opna ég ísskápinn minn og sé að hann er stútfullur af bjór. þegar ég er búin með nokkra þá fer ég í nýju skóna mína og rölti á jazzbarinn við hliðina á mér. svo kem ég heim og stelst í sundlaug nágrannanna...

lag dagsins: ratatat-seventeen years.

|

þriðjudagur, maí 18, 2004

ég man þegar ég fæddist

það er eins og það hafi gerst í gær. ef ég loka augunum sé ég lækninn og ljósið.

ég man þegar ég tók fyrstu skrefin

ég studdi mig við brúna sófann og labbaði að sjónvarpinu og datt. allt hringsnerist og sársaukinn var mikill en ég var svo ánægð með þessi fimm skref að ég hefði getað sprungið af gleði.

ég man þegar ég átti eins árs afmæli

ég fékk fullt af gjöfum, allir vildu halda á mér og knúsa mig. ég fékk köku sem var skreytt með hlaupi.

en ég mundi hvorki hver skrifaði sverris sögu né hvers vegna egill drap atleyjar-bárð.

|

villtir dansar

ef til vill er ég brjáluð
jörðin snýst í hringi og hringi og hringi
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na

ég vil að þú viljir mig er ég dansa
í hringi og hringi og hringi
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na

að eilífu og eilífu,
áfram, áfram, áfram villtir dansar!

day-na-day-na vil vera elskuð
day-na Atla að taka mínar villtu áhættur
day-na-day-na frelsi að ofan
day-na-da-na-da ég er villt og dansandi

hey!

löngun
inni í þér
hausinn á mér snýst í hringi og hringi og hringi
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na
shi-di-ri-di-duy, shi-di-ri-di-da-na

ég vil
að þú viljir mig
svo ég dansa í hringi og hringi og hringi
hey, shi-di-duy, shi-di-ri-di-da-na
hey, shi-di-duy, shi-di-ri-di-da-na

að eilífu og eilífu
áfram, áfram, áfram villtir dansar!

day-na-day-na vil vera eilskuð
day-na ætla að taka mínar villtu ákvarðanir
day-na-day-na frelsi að ofan
day-na-da-na-da ég er villt og dansandi

he-e-e-ey!

dönsum að eilífu, komdu og vertu minn,
dönsum saman, til endaloka
dönsum saman áfram, áfram, áfram villtir dansarar!

day-na-day-na vil vera elskuð
day-na ætla að taka mínar villtu áhættur
day-na-day-na frelsi að ofan
day-na-da-na-da ég er villt og dansandi

|

mánudagur, maí 17, 2004

the importance of owning a book


á einhver bókastoð?

|

sunnudagur, maí 16, 2004

ég ætla ekki að blogga um júróvísjon.

þetta var reyndar lygi. ég ætla að lýsa yfir ágæti (katrín: gott)lagsins lane moje, frá serbíu og svartfjallalandi. kannski tengist það eitthvað framandi (katrín: ókunnugt, erlent) tungumálinu. hvaða tungumál er talað í serbíu og svartfjallalandi?

hvað ætli juliusi caesari hefði fundist um júróvísijón? eða aristótelesi? (katrín: of flókið, ekki gráta)

var það bara ég sem tók eftir því þegar gísli marteinn sagðist vona að ættingjar pólsks (katrín: fólk frá öðru landi) verkafólks (katrín: fólk sem vinnur verkavinnu) greiddu (katrín: vh. af so. greiða)(katrín: ekki greiða hár) íslandi atkvæði svo pólland gæfi (katrín: vh. af so. gefa) okkur stig? kannski að ég sími (katrín: þýðir það sama og að hringja) í gísla martein og spyrji (katrín: vh. af so. spurja) hann afhverju ættingjarnir ættu að gera það?

|

laugardagur, maí 15, 2004

jæja

þá er ég búin í bloggpásunni. veit samt ekki alveg hvað ég hataði svona mikið, en mig grunar að ástæðan fyrir að ég sit nú og blogga sé að ég er að fara í latínupróf á mánudaginn. og viti menn, ég er algjörlega tóm. ég veit ekkert um hvað ég vil skrifa. hins vegar hrönnuðust hugmyndirnar upp er ég ákvað að blogga ekki. en ég blogga víst, ég er stelpa. þær dansa og blogga.

nýja útlitið er líka ástæða fyrir að ég er að blogga. ég er svo hrifin af því. ef það væri í öðru formi myndi ég knúsa það.

það eru 10 dagar þar til ég fer út (mínus 20 mínútur). íbúðin er víst betri en ég bjóst við og vegna margra sófa og herbergja eru gestir nú enn meira velkomnir.

niger-niger-nigrum-nigri-nigro-nigro
nigri-nigri-nigros-nigrorum-nigris-nigris
takk kristinn ármannsson.

ég hlakka til. ég hlakka meira til núna heldur en fyrir viku að fara út. ástæðan fyrir því er samtal mitt við þóru hjörleifsdóttur og birnu katrínu harðardóttur. í því kom fram að þær væru búnar að setja annan kassann af bjórnum þeirra inn í ísskáp.

nágrannar okkar úti eru með sundlaug í sama garði og við. einn dag, dag þegar þau eru í ferðalagi, ætla ég að stelast í sundlaugina. úúú, hættulegt. brjóta lögin.

þess má geta að katrín björgvinsdóttir hefur hafið bloggstörf að nýju. eftir að hafa villst inn á heilabú sem að dó, hefur hún fundið gullna veiginn: blogger.com.

|